Forsķša Skoša körfu Tęma körfu Panta körfu Žaš eru 0 veišileyfi ķ körfunni
 Hafa samband
 Fnjóskį Lax
 Fnjóskį Silungur
 Fjaršarį
 Veišitilhögun
 Veišistašir
 Veišihśs
 Veišikort
 Veišisögur
 Veišitölur
 Veišireglur
 Veišibók 2010
Velkomin(n) į heimasķšu Stangaveišifélagsins Flśša

Hér getur þú keypt veiðileyfi í Fnjóská, uppáhaldsánni okkar. Einnig getur þú skoðað kort af ánni og prentað það út ef þú vilt. Jafnframt er hér að finna nýjustu fréttir af veiði úr Fnjóská hverju sinni, ásamt veiðistaðalýsingum, skemmtilegum veiðisögum af bökkum árinnar, ýmsum tölulegum upplýsingum um veiði í ánni á undanförnum árum og mörgu fleira. Við vonum að þú hafir ánægju af heimsókninni.

Í Fnjóská er bæði lax – og silungsveiði.
Sumarið 2004 veiddust 442 laxar, 2005 veiddust 452 laxar, 2006 veiddust 380 laxar, 2007 veiddust 346 laxar, 2008 veiddust 502 laxar og 2009 veiddust 417 laxar. Meðalveiði áranna 2004 – 2009 er 423 laxar.
Auk þess er töluverð silungsveiði í ánni, fyrst og fremst sjóbleikja og stöku sjóbirtingur, en einnig er þar staðbundinn silungur, bæði bleikja og urriði.

Fjarðará - silungsveiði.
Frá og með sumrinu 2009 eru veiðileyfi í Fjarðará í Hvalvatnsfirði til sölu hér á síðunni.
Einnig er hægt að kaupa veiðileyfi í Jónsabúð á Grenivík, sími 463 3236, netfang joning@emax.is

 
Nżjustu fréttir
26.7.2010 - Góš veiši og fleira skemmtilegt

Nú eru komnir 307 laxar í veiðibókina og vantar ennþá nokkuð af veiddum fiskum frá hollinu sem kláraði á laugardag og svo er holl að klára veiði í dag. Þannig að við erum að skjóta á að veiðin sé komin í c.a. 340 laxa, jafnvel fleiri.

Veiðimenn á svæði 1. fengu 14 laxa á tvær stangir fyrir hádegi í gær og þeir sem voru á svæði 2. á sömu vakt lönduðu þremur löxum og settu í marga fleiri. Bullandi ganga hefur verið og vaxandi síðustu daga eftir smá rólegheit mitt á milli strauma.

Nú í kvöld heyrðum við frá veiðimönnum á svæði 2. sem sáu Árbugsárós alveg fullan af laxi sem var stökkvandi vítt og breitt, Sandur fullur af fiski og einnig svæðið við Efra klif. Við höfum ekki heyrt frá fleirum en gerum ráð fyrir því að alls staðar sé líf.

Mikill höfðingi er í Systrahvammi og lætur vita af því, sá hefur verið að sýna listir sínar með miklum tilþrifum síðustu daga bæði fyrir veiðimenn og gesti í Vaglaskógi. Vanir menn skjóta á að hann sé vel yfir 20 pundin...

Núna er veiðibókin komin á vefinn, þetta er nýjung sem við vitum að verður tekið vel í og ætlum við að uppfæra hana 2-3 sinnum í viku í sumar og vonandi koma á beinni skráningu á tölvutæku formi næsta sumar þannig að alltaf liggi fyrir nýjustu veiðitölur. Hægt er að sjá alla bókina eins og hún leggur sig á vefnum en við birtum ekki nöfn veiðimanna.

Klakkistur eru komnar niður vítt og breitt um ána og á sömu stöðum og síðastliðin sumur. Við biðjum veiðimenn um að skila fallegum 2ja ára fiskum í kistu ef þeir geta og fá þeir umbun fyrir, við þurfum bæði hænga og hrygnur en stórar hrygnur eru mikilvægastar. Það er lítið mál að fara með fisk í slöngu í 10-15 mín bíltúr ef það er ekki kista nálægt og nóg er að vatni með í plastinu.

Klakfiskarnir okkar eru stoðir í veiðinni næstu sumur og það þarf að passa að þeir jafni sig í kistunni eftir að hafa verið veiddir og að veiðimenn fari eins varlega með þá og þeir geta. Við viljum minna á að það er stranglega bannað að snerta á fiskum sem eru þegar komnir í klakkistur.

Laus veiðileyfi eru nú öll komin í vefsöluna, ekkert fleira er laust það sem eftir er sumars.

Fara į fréttasķšu    

20.7.2010 - Fjaršarį

Farið var í nokkrar klukkustundir í dag með tvær stangir í Fjarðará og fengust 5 sjóbleikjur, allar neðst á svæðinu og á bilinu 1-1,5 pund. Bleikjan var í uppítöku og veður frábært, sólskin og logn og mikil skemmtun að vera á svo afskekktum stað með allt iðandi af lífi hvort sem var um að ræða fugla, flugur eða fiska.

Veiðibækur fyrir Fjarðará eru bæði í Ellingsen og Jónsabúð á Grenivík.

Fara į fréttasķšu    

Veišistašur ķ Fnjóskį
Vašnesbreiša og Įrbugsįrós
Þessir tveir veiðistaðir eru einn af þrem gjöfulustu stöðunum í uppánni. Austan árinnar er þægilegur grasbakki, en þar sem áin er þarna þokkalega breið, verður vaða útí til að ná nógu langt, en botninn er mjög háll þarna. Vestan ár er mjór grasbakki og kjarriklæddur, allbrattur malarhóll þar ofan við í pirrandi nálægð í bakkastinu þegar flugunni er beitt. Botn árinnar er líka mjög háll þarna megin.

Tekiš śr lżsingu į Fnjóskį eftir Eirķk Sveinsson, hęgt er lesa alla greinina hér.
Veišileyfi
Žś getur keypt veišileyfi ķ Fnjóskį hérna į heimasķšunni.
 
Laxveišileyfi
2 daga pakkar:
11.8.2010 - 13.8.2010
Svęši 3 - 4 - 1 - 2
1 stöng
15.8.2010 - 17.8.2010
Svęši 3 - 4 - 1 - 2
2 stangir
19.8.2010 - 21.8.2010
Svęši 1 - 2 - 3 - 4
2 stangir
21.8.2010 - 23.8.2010
Svęši 2 - 3 - 4 - 1
2 stangir
23.8.2010 - 25.8.2010
Svęši 1 - 2 - 3 - 4
2 stangir
23.8.2010 - 25.8.2010
Svęši 2 - 3 - 4 - 1
2 stangir
Silungasvęši
19.8.2010
Svęši 5, 2 stangir
24.8.2010
Svęši 5, 2 stangir
25.8.2010
Svęši 5, 2 stangir
26.8.2010
Svęši 5, 2 stangir
27.8.2010
Svęši 5, 1 stöng
30.8.2010
Svęši 5, 2 stangir
31.8.2010
Svęši 5, 2 stangir
1.9.2010
Svęši 5, 2 stangir
Stangaveišifélagiš Flśšir - Akureyri - Sķmi: 892 8801 - Netfang: sigring@nett.is