Forsíða Skoða körfu Tæma körfu Panta körfu Það eru 0 veiðileyfi í körfunni
 Hafa samband
 Fnjóská Lax
 Fnjóská Silungur
 Fjarðará
 Veiðitilhögun
 Veiðistaðir
 Veiðihús
 Veiðikort
 Veiðisögur
 Veiðitölur
 Veiðireglur
 Veiðibók 2010
Allar fréttir
31.8.2010 - Forfallastangir og seiðamorðingjar

Nokkur leyfi losnuðu vegna forfalla og eru komin í sölu hérna á vefnum. Um er að ræða stangir 8-10 september og voru þær settar í söluna sem stakar vaktir en ef áhugi er fyrir að kaupa tveggja daga pakka, sem er ódýrara en að kaupa fjórar stakar vaktir, þá er bara að setja sig í samband við okkur og við leysum ef hægt er.

Veiðin í ánni er nú komin vel yfir 800 laxa, haustið er komið og því erfitt að spá í lokatölur, allt getur gerst á haustdögum, bæði kuldaköst og treg taka en líka er hægt að hitta á algjört bingó og svo er allt þar á milli.

Við skoðuðum veiðibókina vel og þar vantar ennþá fiska frá því fyrr í sumar, skráð veiði hefur verið niður í nánast enga yfir daginn á allar stangir í ánni á topp tíma, sem segir okkur ekkert annað en að ennþá vantar upp á skráningu. Vinsamlegast sendið okkur óskráða veiði í tölvupósti, hringið eða rennið í Ellingsen og skráið áður en veiðitíma lýkur.

Ólafur Kristjáns Flúðafélagi sendi okkur eftirfarandi mynd af 5 punda urriða sem hann veiddi á Hrísgerðisbreiðu fyrr í sumar og sá var með 3 stk laxaseiði í maganum og upp í 17cm. Eitt þeirra stóð upp úr kokinu á honum en engu að síður rauk hann á svartan toby. Óli kallar þessa fiska ekki urriða heldur "seiðamorðingja" og má segja að það viðurnefni sé viðeigandi í þessu tilfelli.

26.8.2010 - 785 laxar komnir í bók

Nú hafa verið færðir til bókar 785 laxar úr Fnjóská og ennþá ágætis veiði. Undanfarið hefur veiðin verið best á svæði 2. en lax er á öllum svæðum og alls staðar að veiðast.

Það eru lausar stangir í fyrramálið og svo aftur í næstu viku eða þriðjudag til fimmtudags. Hægt verður að kaupa stakar vaktir úr þeim dögum um helgina. Eftir það eru lausar 4. stangir 12-14 sept og eru það síðustu leyfin á laxasvæðunum þetta árið.

Ennþá hefur ekki verið landað yfir 20 punda fiski okkur vitanlega en mörgum 18 - 19,5 pund. Nokkrir laxar yfir 20 pund hafa sloppið með því að slíta tauma, brjóta öngla eða hreinlega rífa úr sér með látum. Án vafa verður einhverjum landað yfir 100 cm á næstu dögum þar sem stóru hængirnir eru núna að eigna sér svæði í hyljunum.

Staðan á klakfiski er ágæt en okkur vantar ennþá stórar hrygnur og biðjum veiðimenn að hugsa til framtíðar ef þeir ná fallegum 2ja ára hrygnum og setja þær í kistu. Mjög stóra hængi er líka gott að fá í kistur en ekki er nauðsynlegt að hafa mikið fyrir því þar sem staðan á þeim er nokkuð góð.

Að endingu viljum við benda mönnum á að öllum tveggja ára fiski skal sleppt í september. Það er nóg af smáhængum sem hægt er að fá sér í matinn ef menn vilja og þeir eru tökuglaðir þessa dagana.
Þó það sé ekki skylda að sleppa smálaxi aftur þá beinum við því að mönnum að leyfa líka smálaxahrygnum að fara aftur í ána til að gera sitt gagn ef mögulegt er.

Mynd: Vænn hængur á leiðinni í kistu í síðustu viku, veiðimaðurinn er Hermann Brynjarsson.

Eldri fréttir
15.8.2010 - Veiðisaga og fleira
10.8.2010 - Áfram góð veiði og metið fallið!
3.8.2010 - Fnjóská - metveiði verður í sumar
2.8.2010 - Af Fjarðará og fleira
26.7.2010 - Góð veiði og fleira skemmtilegt
20.7.2010 - Fjarðará
16.7.2010 - Yfir 180 laxar komnir á land
9.7.2010 - Háfur fannst og fréttir af veiði
7.7.2010 - Mikið af laxi að ganga og lausar forfallastangir
4.7.2010 - Farið að veiðast á öllum svæðum
30.6.2010 - Ágæt veiði og lax kominn á land á svæði 2
28.6.2010 - Fréttir af helginni, göngubrúin og fiskar á svæði 4
20.6.2010 - Fleiri fréttir af stórlöxum og lax að ganga
18.6.2010 - Þrír á land í morgun
17.6.2010 - Frábær opnun í Fnjóská
8.5.2010 - Laxveiðileyfi í júní og júlí komin í vefsöluna.
26.4.2010 - Veiðileyfi á silungasvæðið komin á vefinn.
13.4.2010 - Veiðileyfi í Fjarðará komin í sölu
2.1.2010 - Nýtt veiðiár byrjað
31.12.2009 - Veiðitölur 2009
1.9.2009 - Smálaxinn enn að ganga
19.8.2009 - Áfram þokkaleg veiði
30.7.2009 - Þokkaleg veiði
24.7.2009 - Fréttir af 5. svæði.
21.7.2009 - Nýjustu tölur
27.6.2009 - Veiðin að glæðast.
17.6.2009 - Fyrstu laxarnir komnir á land
16.6.2009 - Laxinn er mættur í Fnjóská!
15.5.2009 - Tvíhendunámskeið laugardaginn 13 júní
20.4.2009 - Veiðileyfi 2009 komin á vefinn
16.9.2008 - Silungsveiði á 1. svæði
10.9.2008 - Um 460 laxar komnir á land
22.8.2008 - Sjónauki tapaðist
4.8.2008 - ágætis veiði
8.7.2008 - Klak-kistur
4.7.2008 - Góð veiði
1.7.2008 - 30/06 Tveimur löxum landað á svæði 4
29.6.2008 - Lax búin að veiðast á svæði 3
28.6.2008 - Laxin er komin upp á svæði 4
26.6.2008 - Mikið af fiski að ganga og á hraðferð upp í á
23.6.2008 - Mjög góð byrjun á veiðinni
15.6.2008 - Laxinn er mættur í Fnjóská
11.5.2008 - Veiðileyfi og veiðikort
29.1.2008 - Veiðileyfasala
22.9.2007 - Haustveiði
7.9.2007 - 300 laxar - laus veiðileyfi
4.8.2007 - Smálaxagöngur - klakkistur.
17.7.2007 - Laus leyfi næstu daga
14.7.2007 - Góðar fréttir af 4. svæði.
12.7.2007 - laxinn farinn að veiðast á efri svæðunum
8.7.2007 - Góð bleikjuveiði en lítið sést af laxi
29.6.2007 - Fjörið að byrja?
26.6.2007 - Nýjustu fréttir.
19.6.2007 - Fyrsti laxinn komin úr Fnjóská
30.10.2006 - Fnjóská - Lokatölur - 2006
14.9.2006 - Styttist í vertíðarlok
3.8.2006 - Ágæt veiði
15.7.2006 - Góður gangur.
11.7.2006 - Laxinn kominn upp um alla á
8.7.2006 - Lax og bleikja farin að ganga stigann
4.7.2006 - Góð veiði um helgina
26.6.2006 - Fjörið að byrja?
18.6.2006 - Fyrsti laxinn kominn á land
16.6.2006 - Erfiðar aðstæður
12.4.2006 - Veiðileyfin komin á vefinn
19.11.2005 - Frestur til að skila inn umsóknum liðinn
30.9.2005 - Bráðabirgðatölur úr laxveiðinni
31.8.2005 - Góður gangur í Fnjóská þrátt fyrir kuldakastið
23.8.2005 - Lax um alla á og ennþá fiskur að ganga
12.8.2005 - Nýjustu veiðitölur
29.7.2005 - Fréttir af Fnjóská
19.7.2005 - Ágætis veiði og ný veiðikort komin á vefinn
12.7.2005 - Fréttir af veiði
4.7.2005 - Lax og sjóbleikja að ganga - stórstreymt næstu daga
30.6.2005 - Öll laxasvæðin stimplað sig inn
27.6.2005 - Fyrsti laxinn ofan stiga kominn á land
24.6.2005 - 6 laxar komnir á blað
21.6.2005 - Laxinn er til staðar - veiðimenn óskast !
19.6.2005 - Laxinn sést víða - einn á land í morgun
16.6.2005 - Laxinn er mættur í Fnjóská
10.6.2005 - Hvað gerist í Fnjóská í sumar?
10.6.2005 - Maríulaxar
4.8.2004 - Góð veiði í Fnjóská
20.7.2004 - Góðar smálaxagöngur og lax úr Bakkaá
12.7.2004 - Þokkalegur gangur í Fnjóská
3.7.2004 - Góð ganga í Fnjóská
26.6.2004 - Stærsti lax sumarsins ?
22.6.2004 - Laxinn er kominn í Fnjóská
4.5.2004 - Veiðisumarið 2004 er í sjónmáli
1.9.2003 - Góð bleikjuveiði en laxveiði undir væntingum.
8.8.2003 - Rólegt - og þó
22.7.2003 - Reytingsveiði og lax að ganga
9.7.2003 - Lax og stór sjóbleikja komin á efri laxasvæðin.
22.6.2003 - Góð byrjun í Fnjóská
16.6.2003 - Fyrstu laxarnir úr Fnjóská
9.6.2003 - Laxinn er kominn í Fnjóská
14.3.2003 - Heimasíðan orðin að veruleika


Til baka



Veiðileyfi
Þú getur keypt veiðileyfi í Fnjóská hérna á heimasíðunni.
 
Laxveiðileyfi
Stakir dagar:
9.9.2010 - seinnipartur
Svæði 4, 1 stöng
Silungasvæði
9.9.2010
Svæði 5, 2 stangir
Stangaveiðifélagið Flúðir - Akureyri - Sími: 892 8801 - Netfang: sigring@nett.is