Forsķša Skoša körfu Tęma körfu Panta körfu Žaš eru 0 veišileyfi ķ körfunni
 Hafa samband
 Fnjóskį Lax
 Fnjóskį Silungur
 Fjaršarį
 Veišitilhögun
 Veišistašir
 Veišihśs
 Veišikort
 Veišisögur
 Veišitölur
 Veišireglur
 Veišibók 2010
Veišihśs

Stangaveiðifélagið Flúðir býður veiðimönnum á svæðum 1 - 4 upp á tvo valkosti til dvalar við Fnjóská:

Veiðihúsið Flúðasel
Flúðasel er í landi Böðvarsness skammt neðan við mörk 2. og 3. veiðisvæðis. Ekinn er þjóðvegur 1 frá Akureyri til austurs þar til komið er að brúnni yfir Fnjóská rétt neðan við Vaglaskóg. Farið er yfir brúna og stuttu síðar beygt til vinstri inn á veg 835, sem liggur niður Fnjóskadal til Grenivíkur. Veiðihúsið, sem er gult og grænt að lit, er á hægri hönd 9 km frá þessum vegamótum.
Í húsinu er eitt tveggja manna og eitt þriggja manna herbergi auk svefnlofts fyrir 6 manns. Einnig eru í húsinu snyrting (ekki sturta), eldhúskrókur, borð- og setustofa. Þá er ágæt verönd við húsið og gasgrill, auk aðgerðaraðstöðu og frystikistu fyrir afla.
Menn leggja sjálfir til allan sængurfatnað og handklæði, þrífa eftir sig og fara með allt rusl í gáma, sem t.d. eru við þjóðveginn a.m.k. á tveimur stöðum við ána.
Umgengnisreglur eru í húsinu og ber mönnum að ganga vel um og sýna öðrum tillitssemi.

Skarð í Fnjóskadal
Skarð er austan árinnar skammt neðan við mörk 1. og 2. veiðisvæðis, hvítt reisulegt tveggja hæða hús með rauðu þaki og brúnu þakskeggi. Húsið stendur hátt og skemmtilegt útsýni er bæði upp og niður dalinn.
Ekinn er þjóðvegur 1 frá Akureyri til austurs þar til komið er að brúnni yfir Fnjóská rétt neðan við Vaglaskóg. Farið er yfir brúna og stuttu síðar beygt til vinstri inn á veg 835, sem liggur niður Fnjóskadal til Grenivíkur. Skarð er á hægri hönd, ca. 20 km frá þessum vegamótum.
Aðstaða veiðimanna er á neðri hæðinni, sem er nýstandsett. Ekki er búið á efri hæðinni, en eigendur nýta hana sem sumarbústað einhverja daga á veiðitímanum. Aðstaðan samanstendur af fimm svefnherbergjum, sem samtals eru með 12 rúmum, snyrtingu með steypibaði, eldhúsi með eldavél, örbylgjuofni, ísskáp og uppþvottavél, og alrými, sem er vel búið húsgögnum og notað sem borðstofa og setustofa. Sjónvarp og myndbandstæki eru í setustofunni.
Nokkrar aukadýnur eru á staðnum og nægt gólfrými þannig að auðvelt er að fjölga svefnplássum.
Í útihúsi við bæinn er aðstaða til að geyma og þurrka veiðifatnað, auk þess sem þar er aðgerðaraðstaða og frystikista fyrir aflann, snyrting og setkrókur. Heitur pottur og tvö góð gasgrill eru til afnota fyrir veiðimenn.
Menn leggja sjálfir til allan sængurfatnað og handklæði, þrífa eftir sig og fara með allt rusl í gáma, sem t.d. eru við þjóðveginn a.m.k. á tveimur stöðum við ána.
Umgengnisreglur eru í húsinu og ber mönnum að ganga vel um og sýna öðrum tillitssemi.

Veišileyfi
Žś getur keypt veišileyfi ķ Fnjóskį hérna į heimasķšunni.
 
Laxveišileyfi
Silungasvęši
Stangaveišifélagiš Flśšir - Akureyri - Sķmi: 892 8801 - Netfang: sigring@nett.is