Veiðileyfi á 1 - 4. svæði. Veiðistaðir nr. 1 – 68.
Veiðivon:
18. júní - 10. júlí: Lax og sjóbleikja eru að ganga í ána og oft er líf og fjör á 1. svæði á þessum tíma.
Staðbundinn silungur er á 2 - 4. svæði, en lax og sjóbleikja fara að sjást þar í fyrri hluta júlí.
Eftir 10. júlí fara göngur í ána að ná hámarki og gera má ráð fyrir að lax og sjóbleikja séu komin á öll svæðin.
Veiðifyrirkomulag:
Tvær stangir eru á hverju svæði og eru þær seldar í tveggja daga pökkum þar sem byrjað er á miðjum degi og farið hálfan dag á hvert svæðanna 1 - 4. Einnig eru seldir stakir hálfir og heilir dagar, en verðið á dögum sem þannig eru keyptir er töluvert hærra en verðið á dögum í tveggja daga pökkunum.
Allt löglegt agn er leyfilegt á 1. svæði allt sumarið og til hádegis 11. ágúst á svæðum 2 - 4. Eftir það er aðeins fluga leyfð á svæðum 2 - 4. Sjá nánar á Veiðitilhögun
Vinsamlegast skráið allan afla í veiðibók. |