Efri hluti Fnjóskár er gjarnan nefndur silungasvæðið, enda er uppistaðan í veiðinni silungur þó svo að nokkrir laxar veiðist þar á hverju ári. Þarna er eitt svæði með 2 stöngum:
5. svæði
Efsta veiðisvæði okkar og nær það frá merki ofan við Hólmabreiðu upp að ármótum Bakkaár og Fnjóskár rétt neðan við bæinn Reyki. Merktir veiðistaðir eru nr. 69 - 80 og þaðan er ómerkt upp að Bakkaá.
Veiðivon:
Staðbundinn silungur. Sjóbleikjan fer að sjást um miðjan júlí. Einnig stöku lax.
Veiðifyrirkomulag:
Tvær stangir eru á svæðinu og eru þær seldar í heilum dögum.
Allt löglegt agn er leyfilegt. Vinsamlegast skráið allan afla í veiðibók.
Sjá nánar á Veiðitilhögun
|