Uppistaðan í veiðinni er silungur. Þarna er eitt svæði með 4 stöngum.
Veitt er í Fjarðará ásamt Hvalvatni og eru fjórar stangir leyfðar á veiðisvæðinu. Veiðimenn skipta svæðinu sjálfir á milli sín.
Á hverjum veiðidegi er heimilt að veiða í 12 klst á tímabilinu 6.00 — 24.00. Allt löglegt agn er leyfilegt.
Veiðibók er í Jónsabúð á Grenivík, sími 463 3236, fax 463 3258, joning@emax.is.
Skylt er að færa allan afla í veiðibók og vanda skal skráninguna. Ef veiðimaður hefur ekki tök á að skrá sjálfur í veiðibókina, þá getur hann komið upplýsingum til Jónsabúðar eða til Stangaveiðifélagsins Flúða á netfangið sigring@nett.is Einnig er hægt að skilja eftir upplýsingar um veiðina í merktum kassa við hliðið við afleggjarann að veiðisvæðinu.
Ekki er hámarksafli á silungi en veiðimenn eru hvattir til að gæta hófs við veiðarnar.
Veiðimenn eru beðnir um að sýna landeigendum og öðrum veiðimönnum tillitssemi, ganga vel um landið og skilja ekki eftir rusl.
Veiðileyfi eru einnig seld í Jónsabúð á Grenivík, sími 463 3236, fax 463 3258, joning@emax.is |